Vonarbrú

Almannaheillafélagið Vonarbrú styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa.
Skráðu þig í félagið

Almannaheillafélagið Vonarbrú styrkir stríðshrjáðar
barnafjölskyldur á Gaza.

Börnin á brúnni þurfa okkar stuðning, styrk og kærleika.

Foreldrar þeirra líka – og ömmur þeirra og afar.

Frjáls framlög:
Vonarbrú kt. 420625-1700, 0565-26-06379.
Við höfum leiðina til að koma styrkjunum til þeirra, fljótt og vel.

Þetta gerum við

Við erum almannahagsmunafélag sem leggur áherslu á að styðja við og bæta hag barnafjölskyldna á Gaza í Palestínu. Markmið okkar er að veita þeim þann stuðning sem við erum fær um til að létta undir í þessum krefjandi aðstæðum sem þau eru í.

Ástandið á Gaza versnar dag frá degi, og nú er svo komið að hungursneyð hefur lagst af fullum þunga yfir svæðið, og staðan því alvarlegri en nokkru sinni fyrr.

Verkefnin okkar

Á liðnu ári höfum við styrkt u.þ.b. 70 ungar barnafjölskyldur sem glíma við að halda sér á lífi og þrauka í kjölfar þess efnahagslega og félagslega hruns sem hefur átt sér stað meðal fólksins á Gaza og þau þurfa að glíma við í sínu daglega lífi.

Við trúum á mátt samtakanna okkar til að hafa jákvæð áhrif og erum staðráðin í að halda áfram að stuðla að betri lífskjörum og von fyrir fjölskyldurnar okkar á Gaza.

Fjölskyldurnar okkar

Fjölskyldurnar sem við styrkjum eru ungar fjölskyldur, foreldrarnir flestir fæddir á árunum í kringum 1990 og í sumum fjölskyldum er bara eitt foreldri þar sem hitt hefur verið drepið eða er saknað.

Börnin eru frá einu barni upp í sjö, meirihlutinn yngri en 10 ára. Frá því við hófum okkar starf hafa ellefu börn fæðst inn í hópinn okkar, þar af tvíburar, og fimm eru nú væntanleg á næstu mánuðum.

Þrjár fjölskyldur hafa misst barn, þar af ein sem missti þrjú börn en eitt lifði.