Vonarbrú hlaut mannréttinda viðurkenningu Akureyrarbæjar 2026

25.04.2026

Við greinum hér stolt frá því að í gær, á sumardaginn fyrsta, hlaut Almannaheillafélagið Vonarbrú mannréttinda viðurkenningu Akureyrarbæjar.
Þær Kristín S. Bjarnadóttir, stofnandi Vonarbrúar og forkona stjórnar, og Sóley María Kristínardóttir varakona í stjórn, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd okkar allra, tæplega 500 félaga Vonarbrúar, í Vorkomunni í Hofi á Akureyri í gær.
Okkur þykir afar vænt um þessa viðurkenningu á hjálparstarfi Vonarbrúar, sem sjálfboðaliðar hafa innt af hendi hvern einasta dag í því bráðaástandi sem ríkt hefur á Ga,sa. Í hjálpinni felst fjárhagslegur, félagslegur og sálrænn stuðningur, auk hjúkrunar- og ljósmóður ráðgjafar eftir þörfum.
Kristín þakkaði f.h. Vonarbrúar kærlega fyrir viðurkenninguna í Hofi í gær. Hún sagði hana vera hvetjandi fyrir áframhaldandi hjálparstarf og vakti athygli á því að á Ga,sa væru meira en milljón börn sem væri verið að reyna að svelta til bana. Vonarbrú gæti vissulega bara styrkt hluta þeirra eða einhver hundruð. Neyðin er gríðarleg.
Við hjá Vonarbrú þiggjum með kærum þökkum öll frjáls framlög einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja. Staðið hefur verið fyrir ýmsum viðburðum til fjáröflunar og þar hefur félagsfólk oft á tíðum átt frumkvæðið og fær hér lof og einlægar þakkir fyrir. Þá ber að nefna og þakka rausnarlegan styrk frá Langanesbyggð og frá Grunnskólanum í Hveragerði, eftir góðgerðardaginn þeirra í vetur. Listafólk hefur líka látið til sín taka og hefur gefið vinnu sína.
Þá er hið magnaða sjálfboðaliða verkefni Selbuvettlingar fyrir frið orðinn fastur liður í fjáöflun og við stefnum líka aftur á Reykjavíkurmaraþonið í ágúst en í fyrra hlupu tugir manneskja fyrir börnin á Ga,sa.
Hjá Vonarbrú er engin yfirbygging og allt er unnið í sjálfboðavinnu, í því magni og að því marki sem hentar hverju og einu. Einnig er að sjálfsögðu velkomið að gerast félagi án þess að ætla að sinna sjálfboðastarfi. Árgjaldið, sem er 10 þús. kr., fer óskert sem framlag til fjölskyldu á Ga,sa.
Á heimasíðunni okkar sjáið þið líka farveg til að senda okkur staka styrki, sem við komum fljótt og vel til skila, sjá vonarbru.is
Á myndunum eru þær mægður Sóley María og Kristín, viðurkenningarskjalið og loks er mynd af þeim sem hlutu viðurkenningar Akureyrarbæjar á Vorkomunni í gær, sjá nánar hér:
Áfram við öll saman, við höldum ótrauð áfram og bætum helst í ef eitthvað er, það eru óteljandi mannslíf í húfi og á hverjum einasta degi berast þakkir frá Ga,sa. Þó við getum því miður ekki hjálpað öllum þá erum við að gera gríðarlegt gagn fyrir þau sem við náum að styðja.